Fotbolti.net
19.10.19 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Subway

England í dag - Man City þarf sigur

England í dag - Man City þarf sigur
Canon

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildin fer aftur af stað í dag eftir landsleikjahlé og eru tveir Íslendingar í eldlínunni.
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Everton hafa farið illa af stað og þurfa sigur gegn West Ham í hádegisleiknum. Everton er búið að tapa fjórum leikjum í röð.

Jóhann Berg Guðmundsson fór meiddur af velli í tapinu gegn Frakklandi og verður því ekki með Burnley næstu vikurnar. Í dag missir hann af erfiðum leik gegn Leicester City á King Power leikvanginum.

Lærisveinar Frank Lampard í Chelsea eru búnir að vinna tvo í röð og munu freista þess að vinna þann þriðja er Newcastle kemur í heimsókn á Brúnna.

Englandsmeistarar Manchester City heimsækja Crystal Palace í síðasta leik dagsins og þurfa sigur eftir óvænt tap gegn Wolves í síðustu umferð. City er átta stigum eftir toppliði Liverpool sem stendur en lærisveinar Jürgen Klopp eiga útileik á Old Trafford á morgun.

Klopp hefur gert þrjú jafntefli og tapað einum keppnisleik á Trafford síðustu fjögur ár.

Leikir dagsins:
11:30 Everton - West Ham (Síminn Sport)
14.00 Chelsea - Newcastle (Sjónvarp Símans)
14:00 Tottenham - Watford
14:00 Leicester - Burnley
14:00 Aston Villa - Brighton
14:00 Bournemouth - Norwich
14:00 Wolves - Southampton
16:30 Crystal Palace - Man City (Síminn Sport)

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.