Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
Siggi Lár: Gaman að vera í Laugardalnum
Horfðu á Besta spjallið - Staða mála skoðuð í landsleikjahlénu
Pablo Punyed sáttur: Vona að ég sjálfur geti spilað minna og minna í sumar
Gaui Lýðs um uppganginn á Ásvöllum: Setjum stefnuna á að komast í efstu deild
Nemanja Pjevic: Þegar maður bíður eftir strætó koma þeir allt í einu þrír í einu
   þri 19. október 2021 14:37
Elvar Geir Magnússon
Sigurður Bjartur: Fínt að fá þetta svigrúm frá KR
Sigurður Bjartur Hallsson.
Sigurður Bjartur Hallsson.
Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Steinke
„Mér líður bara vel í henni strax," segir sóknarmaðurinn Sigurður Bjartur Hallsson sem er kominn í KR-treyjuna. Sigurður Bjartur skoraði sautján mörk fyrir Grindavík í Lengjudeildinni í fyrra.

Í samningi hans við KR er klásúla um að ef samningstilboð berst erlendis frá þá geti hann farið út, sú klásúla er fram í janúar. Hann er að fara til reynslu í Noregi í lok mánaðarins.

„Það var mjög fínt að fá þetta svigrúm frá KR og að þeir hafi verið tilbúnir í það," segir Sigurður Bjartur.

Hann segir að áhuginn frá öðrum íslenskum félögum hafi verið nokkuð mikill en um leið og KR hafi komið upp þá hafi hann tekið ákvörðun. „Að mínu viti er KR stærsta félag landsins. Þeir hafa unnið mest."

„Þetta er mjög stórt skref, það eru betri leikmenn og allt það. En ég er spenntur. Ég held að hér séu leikmenn sem ég get lært helling af og af Rúnari sem þjálfara.
Slapp
banner
banner