Fotbolti.net
19.10.26 - 21:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson

England: Maddison með stórkostlegt mark í fyrsta sigri Tottenham

England: Maddison með stórkostlegt mark í fyrsta sigri Tottenham
Canon

Mynd: EPA

Tottenham 3 - 1 Coventry
1-0 James Maddison ('14 )
1-1 Jack Rudoni ('49 )
2-1 Omar Marmoush ('58 )
3-1 Ben Davies ('90 )
Tottenham vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu þegar liðið fékk nýliða Coventry í heimsókn í kvöld.

Coventry komst í góða stöðu eftir tíu mínútna leik þegar Milan van Ewijk átti skot úr teignum en vörnin komst fyrir. Stuttu síðar náði Tottenham forystunni þegar James Maddison skoraði stórglæsilegt mark.

Mohammed Kudus lagði boltann á Maddison sem tók viðstöðulaust skot og boltinn snerist í fjærhornið. Dominic Solanke kom boltanum í netið stuttu síðar en markið dæmt af vegna rangstöðu.

Coventry jafnaði metin strax í upphafi seinni hálfleiks þegar Jack Rudoni skoraði af miklu harðfylgi.

Staðan var ekki jöfn lengi því Omar Marmoush skoraði stuttu síðar. Hann var sterkari og vann baráttuna við Van Ewijk um boltann og skoraði með skoti við vítateigslínuna. Hans fyrsta mark fyrir liðið.

Ben Davies innsiglaði fyrsta sigur Tottenham á tímabilinu. Tottenham fór upp fyrir Coventry í 16. sæti með 6 stig. Coventry er í 17. sæti einnig með 6 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.