19.10.26 - 09:59
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Tveir af bestu mönnum Kormáks/Hvatar í Hauka (Staðfest)

Pere Belmonte.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Pere Belmonte og Federico Ignacio Russo Anzola eru báðir búnir að skrifa undir tveggja ára samning við Hauka.
Þeir koma frá Kormáki/Hvöt þar sem þeir áttu gott tímail. Russo er öflugur varnarmaður en Belmonte spilar framar á vellinum og endaði með ellefu mörk í 2. deild í sumar.

TENGT EFNI
Risastóri íslenski slúðurpakkinn - Stór nöfn á faraldsfæti
Russo er 26 ára miðvörður frá Venesúela og kom fyrst til Íslands fyrir tímabilið 2025, fór fyrst í KF en um mitt sumar samdi hann við Kormák/Hvöt. Hann var fyrirliði Kormáks/Hvatar í sumar.
Belmonte er 25 ára spænskur miðjumaður sem kom til Kormáks/Hvatar eftir að hafa spilað með liði Oregon State háskólans. Hann var vainn í lið ársins í 2. deild fyrir frammistöðu sína í sumar.
Kormákur/Hvöt endaði í 8. sæti 2. deildar í sumar og fór í undanúrslit Fótbolti.net bikarsins. Haukar unnu 2. deildina og verður í Lengjudeildinni á næsta tímabili.

Russo var með fyrirliðabandið hjá Kormáki/Hvöt.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson