Fotbolti.net
19.11.26 - 09:00
Elvar Geir Magnússon

Hverja mun Pochettino reyna að fá til Man Utd?

Nico Paz, argentínski landsliðsmaðurinn hjá Como.

Nico Paz, argentínski landsliðsmaðurinn hjá Como.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Hverja mun Manchester United reyna við í komandi félagaskiptagluggum? Hér er slúðurpakki dagsins í boði Powerade.
Koma Mauricio Pochettino gæti aukið möguleika Manchester United að fá til sín Nico Paz (22) frá Como en báðir eru Argentínumenn. Real Madrid er þó með klásúlu um að geta keupt hann til baka á næsta ári fyrir 80 milljónir evra. (Sun)

Varnarmennirnir Calvin Bassey (26) og Antonee Robinson (29) hjá Fulham, Jarrad Branthwaite (24) hjá Everton, Alejandro Balde (23) hjá Barcelona og Rayan Ait-Nouri (25) hjá Manchester City eru allir á blaði hjá Manchester United. (Sky Sports)

Besiktas hyggst leggja fram 37,5 milljóna punda tilboð í janúar í Amad Diallo (24) hjá Manchester United en félagið hefur bætt kantmanninum frá Fílabeinsströndinni á óskalista sinn. (NTV Spor)

Liverpool og Manchester United hafa áhuga á varnarmanni Barcelona, Alejandro Balde (23), en spænska félagið vill ekki selja vinstri bakvörðinn. (Teamtalk)

Framherji Benfica og gríska landsliðsins, Vangelis Pavlidis (27), er einn þeim leikmönnum sem Pochettino vill fá í leikmannahóp Manchester United, en Tottenham og Barcelona hafa einnig sýnt honum áhuga. (Caught Offside)

Ólíklegt þykir að Weston McKennie (28), miðjumaður Juventus, fari í ensku úrvalsdeildina þrátt fyrir umræðu um að bandarískir leikmenn gætu fylgt Pochettino, fyrrum landsliðsþjálfara þeirra, til Manchester United. (Sky Sports)

Arsenal fylgist áfram með kantmanninum Antonio Nusa (21), sem leikur með RB Leipzig og norska landsliðinu, og sóknarmanninum Kevin Schade (24), sem leikur með Brentford og þýska landsliðinu. (Sky Sports)

Barcelona hefur endurnýjað áhuga sinn á miðverðinum Luka Vuskovic (19) sem leikur með Brighton & Hove Albion og króatíska landsliðinu. (Teamtalk)

Middlesbrough er bjartsýnt á að Will Lankshear (21), leikmaður enska U21 landsliðsins, hafni áhuga frá félögum í ensku úrvalsdeildinni og verði áfram. (Sun)

Fyrrum varnarmaður Arsenal, Rob Holding (31), er samningslaus og hefur vakið áhuga Sheffield United, LAFC og Houston Dynamo. (Sky Sports)

Arsenal fylgist með kantmanninum Carlos Forbs (22) sem leikur með Club Brugge og portúgalska landsliðinu, en hann er metinn á um 20 milljónir punda. (Fichajes)
Pavlidis er einn af þeim sem eru orðaðir við United.

Pavlidis er einn af þeim sem eru orðaðir við United.

Canon

Mynd: EPA

Arsenal heldur áfram að fylgjast með Nusa.

Arsenal heldur áfram að fylgjast með Nusa.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.