Fotbolti.net
19.11.26 - 12:49
Elvar Geir Magnússon

Í átta ára bann fyrir að grýta steini í andlit dómara

Í átta ára bann fyrir að grýta steini í andlit dómara
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ekvadorskur fótboltamaður hefur verið dæmdur í átta ára bann fyrir að kasta steini í aðstoðardómara.

Jhon Perlaza var að spila fyrir Club Ciudad de Yantzaza gegn Club Rio Aguarico FC í ekvadorsku C-deildinni í október þegar atvikið átti sér stað. Steinninn lenti í aðstoðardómaranum Lenin Giovanni Ojeda Nunez sem þurfti að gangast undir aðgerð í andliti.
Á myndbandi sem sjá má hér fyrir neðan má sjá Perlaza kasta steinum frá varamannabekknum. Nunez fer samstundis niður og heldur um andlitið og fær síðan læknisaðstoð.

„Aðstoðardómarinn hlaut alvarleg meiðsli sem þurfti aðgerð og 60 daga bataferli,“ segir fótboltasamband Ekvador sem dæmdi Perlaza í átta ára bann frá öllu tengdu fótbolta.

Í yfirlýsingu sem gefin var út 20. október, þremur dögum eftir leikinn, baðst Yantzaza afsökunar og staðfesti að Perlaza hefði verið rekinn frá félaginu.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.