19.11.26 - 17:00
Elvar Geir Magnússon
Joelinton ekki með gegn Arsenal

Brasilíumaðurinn Joelinton.

Mynd: EPA

Brasilíumaðurinn Joelinton.

Mynd: EPA
Joelinton verður ekki með Newcastle gegn Arsenal á laugardaginn. Joelinton missti af síðasta leik Newcastle gegn Fulham vegna meiðsla í læri.
„Við bíðum eftir áliti sérfræðings og svo munum við tilkynna hversu lengi hann verður frá. Vonandi verður hann kominn aftur mjög fljótlega," segir Matthias Jaissle, stjóri Newcastle.

Á fréttamannafundi í dag tjáði Jaissle sig einnig um bakvörðinn Tino Livramento sem er að snúa til baka úr meiðslum.
„Hann var frá í langan tíma og hefur verið oft á meiðslalistanum. Það er ánægjuefni að fá hann aftur. Við erum að stýra álaginu á hann á skynsamlegan hátt því við viljum hafa hann tiltækan í langan tíma núna."
„Hann er frábær fótboltamaður og frábær manneskja, ég er ánægður með að fá hann aftur í hópinn. Hann er að taka skref í rétta átt."

Tino Livramento.

Mynd: EPA