19.11.26 - 17:05
Kári Snorrason
„Kemur á óvart að hann hafi komið öllum á óvart“

Liðsfélagarnir ánægðir með Trafford.

Mynd: EPA

Orðinn þreyttur á að hrósa Trafford.

Mynd: EPA

Liðsfélagarnir ánægðir með Trafford.

Mynd: EPA
Daniel Farke, stjóri Leeds, segir það ekki koma sér á óvart hve vel James Trafford hafi komið inn í mark Englands í leik liðsins gegn heimsmeisturum Spánar í Þjóðadeildinni.
Trafford hefur fengið mikið lof fyrir frammistöðu sína gegn heimsmeisturunum en Farke er orðinn þreyttur á að hrósa honum.

„Ég er orðinn svolítið þreyttur á þessu því á síðustu 237 blaðamannafundum hef ég verið að hrósa honum og núna er öll þjóðin að hrósa honum.
Það kemur mér á óvart að hann komi öllum á óvart og að markvörðurinn okkar geti skilað frábærri frammistöðu, þess vegna er hann með hanskana. Ég ætlast líka til þess að hann gripi bolta og verji skot. Það kemur mér ekki á óvart að hann hafi staðið sig vel,“ sagði Farke á blaðamannafundi fyrr í dag.
Leeds mætir Chelsea í ensku úrvalsdeildinni á laugardag og segir Farke stöðuna á hópnum góða. Anton Stach er klár í slaginn eftir að hafa glímt við meiðsli.
Þá eru þeir Dominic Calvert-Lewin og Noah Okafor sömuleiðis við hestaheilsu og hafa æft með liðinu í vikunni, en þeir hafa verið að glíma við smávægileg meiðsli.