19.11.26 - 14:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Samstarfi Grindavíkur og Njarðvíkur slitið - Haukar upp í efstu deild?

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Grindavík og Njarðvík hafa gefið út sameiginlega yfirlýsingu um að ákvörðun hafi verið tekin um að hætta samstarfi í meistaraflokki kvenna.
Liðið hefur leikið undir merkjum Grindavíkur/Njarðvíkur síðastliðin tvö ár. Það fór upp úr Lengjudeildinni í fyrra og endaði í 5. sæti Bestu deildarinnar á liðnu tímabili ásamt því að fara í bikarúrslitaleik.
Grindavík ætlar að vera með lið í 2. deild á næsta tímabili. Í tilkynningunni segir að Njarðvík hafi rétt á því að taka sæti í Bestu deildinni frá og með næsta tímabili.
Fari svo að Njarðvík nýti ekki þann rétt er búist við því að Haukar fari upp sem 3. besta liðið í næstefstu deild á liðnu tímabili.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er óljóst hvað Njarðvík mun gera en ákvörðun verður tekin á næstu dögum.

Yfirlýsing frá knattspyrnudeildum Grindavíkur og Njarðvíkur
Knattspyrnudeildir Grindavíkur og Njarðvíkur hafa sameiginlega ákveðið að hætta samstarfi um meistaraflokk kvenna. Liðið hefur leikið undir merkjum Grindavíkur/Njarðvíkur síðastliðin tvö ár.
Samstarfið hefur verið einstaklega farsælt. Á fyrsta tímabilinu fór liðið upp úr Lengjudeildinni og tryggði sér sæti í Bestu deild kvenna. Á öðru árinu hélt liðið sæti sínu meðal þeirra bestu. Hápunkturinn var bikarúrslitaleikurinn á Laugardalsvelli, sem tapaðist naumlega eftir frábæra frammistöðu. Árangurinn sýnir þá vinnu, samheldni og metnað sem leikmenn, þjálfarar, stjórnir og sjálfboðaliðar beggja félaga lögðu í verkefnið.
Grindavík hefur ákveðið að snúa heim með liðið sitt. Á næsta keppnistímabili leikur meistaraflokkur kvenna undir nafni Grindavíkur, á heimavelli í Grindavík, og tekur þátt í 2. deild kvenna. Félagið lítur á þetta sem mikilvægt skref í að halda sjó og vera tilbúin að hefja uppbyggingu knattspyrnunnar og samfélagsins í Grindavík.
Njarðvík hefur rétt til að taka sæti í Bestu deild kvenna frá og með keppnistímabilinu 2027. Stjórn knattspyrnudeildar Njarðvíkur vinnur nú að því að skoða næstu skref og meta þá möguleika sem staðan býður upp á, með hagsmuni félagsins að leiðarljósi.
Félögin þakka öllum leikmönnum, þjálfurum, starfsfólki, sjálfboðaliðum, styrktaraðilum og stuðningsfólki fyrir þeirra framlag síðustu tvö ár. Stuðningurinn úr báðum bæjarfélögum hefur verið ómetanlegur. Við kveðjum samstarfið með stolti og þakklæti og óskum hvort öðru alls hins besta í framhaldinu.
Knattspyrnudeild Grindavíkur
Knattspyrnudeild Njarðvíkur
19.11.2026