Fotbolti.net
19.11.26 - 23:30
Ívan Guðjón Baldursson

Sendu hamingjuóskir áður en þeir ráku þjálfarann

Sendu hamingjuóskir áður en þeir ráku þjálfarann
Canon

Mynd: BBC / X

Ian Evatt var í dag rekinn frá Blackpool sem er í fallbaráttu í League One deildinni, þeirri þriðju efstu á Englandi.
Brottreksturinn er sérstakur að því leyti að Evatt á 45 ára afmæli í dag. Twitter aðgangur Blackpool óskaði honum til hamingju með afmælið í morgun og aðeins sjö klukkustundum síðar birti sami aðgangur fregnirnar um að Evatt væri rekinn.

Blackpool þakkaði Evatt fyrir störf sín og mun Steve Thompson taka við liðinu til bráðabirgða.

Evatt er rekinn eftir slæmt gengi í síðustu leikjum, en síðasti leikur liðsins var 1-0 tap á útivelli gegn Wimbledon um síðustu helgi. Það vantaði mikilvæga leikmenn í byrjunarlið Blackpool fyrir þann leik vegna veirusýkingar sem kom upp í hópnum.





England 1. deild - karlar

#LiðLmunStig
1Huddersfield14+1629
2Stockport15+1429
3Oxford United13+1126
4Luton14+624
5Sheff Wed14+1123
6Plymouth15-123
7Reading15+822
8Bradford13+222
9MK Dons14+621
10Cambridge United14021
11Leicester13+319
12Mansfield Town13+219
13Wycombe13-218
14Leyton Orient13+517
15Burton15-717
16Stevenage12+416
17Wimbledon14-1116
18Notts County12-114
19Wigan15-1014
20Blackpool13-512
21Doncaster Rovers13-812
22Peterboro13-1210
23Barnsley13-119
24Bromley13-209
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.