19.11.26 - 10:08
Albert Guðmundsson
Stjörnulið vikunnar í Fantasy - Sverrir Bergmann
Skráðu þig í Fantasy deild 38 umferða og Fótbolta.net! Kóðinn er 10k1ov

Sverrir Bergmann er þúsundþjalasmiður og hér sést hann leika listir sínar á landsliðsæfingu árið 2007

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Liðið hans Sverrir skilaði 73 stigum í hús í 10. umferð ensku úrvalsdeildarinnar

Mynd: Fantasy Premier League

Nýr þáttur af 38 umferðum kom út í vikunni en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban en þeir félagar taka fyrir eitt stjörnulið í hverjum þætti og í þessari viku var það Sverrir Bergmann tónlistarmaður, pólitíkus og tölvuleikjanörd svo fátt eitt sé nefnt.
Liðið hans Sverris, sem ber nafnið "Manswess", sótti 73 stig í 10. umferð ensku úrvalsdeildarinnar og var skipað eftirfarandi leikmönnum:
Markmaður
Trafford (10)
Varnarmenn
De Cuyper (6), Calafiori (6), Bogle (7)
Miðjumenn
Rice (3), Gibbs-White (5), Cherki (9), Mbeumo (2), Gross (10)
Sóknarmenn
Haaland C (4), Jackson (11)
Sverrir er mikill Leedsari og er með 3 Leedsara í sínu liði, hann tók góða ákvörðun að hvíla Calvert-Lewin á bekknum þessa umferðina sem fékk aðeins 2 stig. Hinir tveir Leedsararnir Trafford og Bogle þökkuðu traustið með 10 og 7 stig. Haaland skar hjartað hans úr með skeið þar sem hann skilaði einungis 2 stigum sem fyrirliði.
Við óskum Sverri góðs gengis í ár og vonum að honum takist að byggja ofan á þessa góðu umferð.
Við minnum á að allir þættir 38 umferða eru aðgengilegir á hlaðvarpsveitu Fótbolta.net, Spotify og á YouTube.
Frestur til að gera breytingar fyrir 11. umferð er kl 11:00 laugardaginn 21. nóvember. Umferðin hefst á leik Man City og Fulham kl 12:30 sama dag.
Liðið hans Sverris er tekið fyrir á mínútu 11:50 í þættinum sem má sjá hér fyrir neðan.