19.11.26 - 14:49
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Svona lítur teymi Stjörnunnar út - Þriðji aðstoðarmaðurinn kynntur

Þór er mættur aftur í Stjörnuna.

Mynd: Stjarnan

Rúnar Páll og Veigar Páll.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þór er mættur aftur í Stjörnuna.

Mynd: Stjarnan
Þriðji aðstoðarþjálfarinn í teymi Rúnars Páls Sigmundssonar var tilkynntur í dag. Þór Sigurðsson kemur inn í teymið sem aðstoðarþjálfari og er yfir álagsstýringu hjá fótboltadeildinni í heild sinni. Þeir Þór, Veigar Páll Gunnarsson og Guðmundur Kristjánsson eru því aðstoðarmenn Rúnars.
Þór, sem er öflugur fitness þjálfari, þekkir vel til hjá Stjörnunni því hann starfaði hjá félaginu tímabilin 2023-25 eftir að hafa áður starfað hjá Gróttu.
Þá kemur fram að Rajko Stanisic muni áfram sinna starfi markmannsþjálfara og Hákon Ernir Haraldsson haldi áfram sem leikgreinandi meistaraflokks karla.
„Með þessum breytingum styrkjum við enn frekar faglegt starf deildarinnar, með áherslu á líkamlegan undirbúning, markvissa álagsstýringu, leikgreiningu og fyrirbyggjandi aðgerðir sem miða að því að hámarka árangur og vellíðan leikmanna. Það er virkilega ánægjulegt að fá Þór aftur heim í Stjörnuna og þar með er þjálfarateymi meistaraflokks karla fullmannað fyrir komandi tímabili!" segir í tilkynningu Stjörnunnar.
Stjarnan er því komin með ansi myndarlegt teymi í kringum liðið sitt eins og sjá má hér að neðan.

Teymið í heild sinni
Þjálfari: Rúnar Páll Sigmundsson
Aðstoðarþjálfari: Veigar Páll Gunnarsson
Aðstoðarþjálfari: Guðmundur Kristjánsson, einnig yfirstyrktarþjálfari fótboltadeildar
Aðstoðarþjálfari: Þór Sigurðsson, ber ábyrgð á álagsstýringu
Markmannsþjálfari: Rajko Stanisic
Leikgreinandi: Hákon Ernir Haraldsson
Yfirmaður fótboltamála: Viktor Bjarki Arnarsson