Fotbolti.net
20.01.21 - 11:00
Elvar Geir Magnússon

Fólk verður að fara að taka Leicester alvarlega í titilbaráttunni

Jamie Vardy og James Maddison.

Jamie Vardy og James Maddison.

Canon

Mynd: Getty Images

Phil McNulty, einn helsti fótboltaskríbent BBC, segir að fólk þurfi að taka Leicester alvarlega í baráttunni um enska meistaratitilinn. Baráttan um efsta sætið sé óútreiknanleg.

Leicester vann Chelsea 2-0 í gær og er komið á topp ensku úrvalsdeildarinnar.
„Það voru engin vandamál fyrir Leicester sem er á toppi deildarinnar og liðið virkar eins og vel smurð vél. Stigasöfnun liðsins á þessu tímabili er samanburðarhæfur við óvæntan sigur liðsins í deildinni 2016 undir stjórn Claudio Ranieri," skrifar McNulty.



„Það tímabil var liðið á þessum tímapunkti í öðru sæti á eftir Arsenal, með 39 stig. Liðið er nú með stigi minna úr sama leikjafjölda. Brendan Rodgers, stjóri Leicester, hefur nú náð að afreka það að vinna öll 34 liðin sem hann hefur mætt í ensku úrvalsdeildinni sem stjóri."

„Sigurinn gegn Chelsea var sönnun þess að Leicester er með glæsilegt lið sem er fullt af gæðum og hraða. Þeir eru vel þjálfaðir og mjög skipulagðir. Þeir treysta enn á reynsluboltann Jamie Vardy en vopnin eru fleiri, til dæmist í hinum hæfileikaríka James Maddison sem skoraði annað markið."

McNulty segir að Rodgers hafi verið mjög klókur á leikmannamarkaðnum. Til dæmis hafi salan á Ben Chilwell til Chelsea fyrir 50 milljónir punda lukkast vel þar sem James Justin hefur leikið ákaflega vel í hans stað.

„Það besta sem hann gerði á markaðnum eru þó væntanlega kaupin á franska varnarmanninum Wesley Fofana en þessi tvítugi strákur var keyptur frá St Etienne fyrir um 30 milljónir punda. Hann hefur allt til brunns að bera og gæti náð svakalega langt," skrifar McNulty.

„Leicester er ekki mikið í umræðunni þegar rætt er um hvaða lið vinni mótið en taflan lýgur ekki. Rodgers og leikmenn hans eru að sýna mikið öryggi og það má ekki vanmeta þá."
Varnarmaðurinn Wesley Fofana.

Varnarmaðurinn Wesley Fofana.

Canon

Mynd: Getty Images

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Brighton1+43
2Arsenal1+33
3Brentford1+33
4Everton1+23
5Hull City1+23
6Man City1+13
7Ipswich Town1+13
8Leeds1+13
9Liverpool101
10Newcastle101
11Chelsea000
12Fulham000
13Sunderland1-10
14Bournemouth1-10
15Nott. Forest1-10
16Man Utd1-20
17Crystal Palace1-20
18West Ham38-1939
18Tottenham1-30
19Coventry1-30
19Burnley38-3722
20Wolves38-4120
20Aston Villa1-40
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.