Fotbolti.net
20.02.20 - 10:22
Magnús Már Einarsson

Alli brjálaður eftir skiptingu - Mourinho segist ekki eiga sökina

Dele Alli.

Dele Alli.

Canon

Mynd: Getty Images

Jose Mourinho, stjóri Tottenham, segir að miðjumaðurinn Dele Alli hafi ekki verið ósáttur við sig eftir skiptingu í 1-0 tapinu gegn RB Leipzig í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gær.

Alli var tekinn af velli á 64. mínútu en hann henti brúsa og skónum sínum í jörðina eftir skiptinguna og virkaði mjög reiður
„Ég held að hann hafi verið reiður yfir frammistöðu sinni en ekki út í mig," sagði Mourinho eftir leik.

„Ég held að hann skilji af hverju ég tók hann út af og liðið batnaði við það."

Hér að neðan má sjá viðbrögð Alli eftir skiptinguna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.