Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 20. febrúar 2021 11:12
Ívan Guðjón Baldursson
Æfingaleikir: Uppsveitir og KH með stórsigra
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Úrslit voru að berast úr tveimur æfingaleikjum þar sem Uppsveitir og KH rúlluðu yfir Úlfana og Björninn.

Boðið var uppá miklar markaveislur þar sem níu mörk voru skoruð í hvorum leik.

Róbert Daði Sigurþórsson skoraði tvennu fyrir Úlfana af vítapunktinum en það dugði ekki því Albert Rútsson og Pétur Geir Ómarsson settu sitthvora tvennuna fyrir Uppsveitir og höfðu Sunnlendingar að lokum betur, 3-6.

Eyþór Örn Þorvaldsson og Haukur Ásberg Hilmarsson settu þá tvennu hvor í 7-2 sigri KH gegn Birninum.

Úlfarnir 3 - 6 Uppsveitir
0-1 Sjálfsmark
0-2 Albert Rútsson ('20)
1-2 Róbert Daði Sigurþórsson ('24, víti)
1-3 Máni Snær Benediktsson ('34)
2-3 Arnór Siggeirsson ('36)
2-4 Pétur Geir Ómarsson ('43)
2-5 Pétur Geir Ómarsson ('51, víti)
3-5 Róbert Daði Sigurþórsson ('62, víti)
3-6 Albert Rútsson ('65)

KH 7 - 2 Björninn
Mörk KH:
Eyþór Örn Þorvaldsson (2)
Haukur Ásberg Hilmarsson (2)
Patrik Írisarson Santos
Jón Arnar Stefánsson
Sigfús Kjalar Árnason
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner