Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 20. mars 2020 13:30
Magnús Már Einarsson
Djourou og Song reknir eftir að hafa neitað launalækkun
Johan Djourou.
Johan Djourou.
Mynd: Getty Images
Johan Djourou og Alexandre Song, fyrrum leikmenn Arsenal, hafa verið reknir frá svissneska félaginu Sion.

Christian Constantin, forseti Sion, sendi leikmönnum skilaboð á WhatsApp á þriðjudag og óskaði eftir að leikmenn myndu taka á sig launalækkun vegna áhrifa sem kórónuveiran hefur.

Djourou og Song voru á meðal níu leikmanna sem tóku illa í þessar áætlanir og allir þessir leikmenn voru í kjölfarið reknir frá félaginu.

Leikmennirnir eru ósáttir og ætla leikmannasamtökin í Sviss að aðstoða þá. Leikmennirnir gætu farið í málaferli við Sion.

Mörg félög í Sviss eiga í fjárhagsvandræðum þessa dagana en keppni þar hefur verið aflýst út tímabilið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner