Fotbolti.net
20.04.19 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Subway

England í dag - Man City hefur harma að hefna gegn Spurs

England í dag - Man City hefur harma að hefna gegn Spurs
Canon

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarhelgin byrjar í dag þegar Manchester City tekur á móti Tottenham í stórleik. Sami leikur fór fram í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar fyrr í vikunni og stóðu heimamenn í Manchester uppi sem sigurvegarar, 4-3. Sá sigur nægði þó ekki og komst Tottenham í undanúrslitin eftir 1-0 sigur í fyrri leiknum.
Englandsmeistarar City hafa því harma að hefna en lokamínúturnar voru stútfullar af dramatík þar sem VAR myndbandstæknin var í aðalhlutverki. Raheem Sterling kom knettinum í netið undir lokin en rangstaða dæmd þökk sé tækninni. Mark frá Sterling hefði fleytt City áfram í næstu umferð.

Mikið er undir fyrir bæði lið í dag. City er í harðri titilbaráttu við Liverpool en samkeppnin er ekki minni fyrir Tottenham sem er í fjögurra liða Meistaradeildarbaráttu. Hafi Tottenham betur í dag gætu þeir eyðilagt annars frábært tímabil Manchester City.

Tottenham er að glíma við mikil meiðslavandræði og verða Harry Kane, Moussa Sissoko og Serge Aurier ekki með. Harry Winks, Eric Dier og Erik Lamela eru tæpir.

Fjórir leikir hefjast svo klukkan 14:00. West Ham fær Leicester í heimsókn í baráttunni um sjöunda sætið og Bournemouth tekur á móti föllnu liði Fulham. Botnlið Huddersfield á leik við Watford og Wolves mætir Brighton.

Newcastle og Southampton eigast við í síðasta leik dagsins. Liðin eru fyrir ofan fallsvæðið en þrjú stig færu langleiðina með að bjarga þeim frá falli.

Leikir dagsins:
11:30 Manchester City - Tottenham (Stöð 2 Sport)
14:00 Bournemouth - Fulham
14:00 Huddersfield - Watford
14:00 West Ham - Leicester
14:00 Wolves - Brighton
16:30 Newcastle - Southampton (Stöð 2 Sport)

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal1+33
2Brentford1+33
3Everton1+23
4Hull City1+23
5Ipswich Town1+13
6Leeds1+13
7Aston Villa000
8Chelsea000
9Fulham000
10Liverpool000
11Man City000
12Newcastle000
13Bournemouth000
14Brighton000
15Sunderland1-10
16Nott. Forest1-10
17Man Utd1-20
18West Ham38-1939
18Crystal Palace1-20
19Burnley38-3722
19Tottenham1-30
20Wolves38-4120
20Coventry1-30
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.