Fotbolti.net
20.05.22 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Subway

England um helgina - Allt undir á sunnudag

Bikar er í boði

Bikar er í boði

Canon

Mynd: Getty Images

Lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar fer fram á sunnudag og er spenna á báðum endum töflunnar. Liverpool og Manchester City berjast um titilinn á meðan Burnley og Leeds bítast um síðasta örugga sætið í deildinni.
Burnley fær Newcastle í heimsókn á Turf Moor. Burnley er í 17. sæti, sem er síðasta örugga sætið. Liðið er með jafnmörg stig og Leeds en betri markatölu. Leeds mætir á meðan Brentford á Samfélagsvellinum.

Tottenham Hotspur getur tryggt Meistaradeildarsætið er liðið heimsækir Norwich á Carrow Road. Arsenal á örlítinn möguleika á Meistaradeildarsætinu en þá þarf Tottenham að tapa og Arsenal þarf að vinna Everton heima.

Að lokum er það titilbaráttan. Steven Gerrard, stjóri Aston Villa og auðvitað fyrrum leikmaður Liverpool, fer með lið sitt á Etihad-leikvanginn og mætir Manchester City. Hann ætlar sér að ná í stig og gæti það vel dugað fyrir Liverpool sem spilar við Wolves á Anfield.

Liverpool er stigi á eftir Man City. Við höfum séð það oft og mörgum sinnum að allt getur gerst í ensku úrvalsdeildinni.

Sunnudagur:
15:00 Burnley - Newcastle
15:00 Norwich - Tottenham
15:00 Man City - Aston Villa
15:00 Liverpool - Wolves
15:00 Leicester - Southampton
15:00 Crystal Palace - Man Utd
15:00 Chelsea - Watford
15:00 Brighton - West Ham
15:00 Brentford - Leeds
15:00 Arsenal - Everton
England um helgina - Allt undir á sunnudag
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.