Fotbolti.net
20.07.10 - 22:46
Hörður Snævar Jónsson

Kristján Óli: Ljótasta markið á ferlinum

Auglýsing
Kristján Óli: Ljótasta markið á ferlinum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Kristján Óli Sigurðsson nýjasti leikmaður Víkings Ólafsvíkur var á skotskónum í sigri liðsins á KV í kvöld.
Kristján skoraði fyrsta mark leiksins í 0-3 sigri og er liðið í þægilegri stöðu á toppnum.

Við biðjumst velvirðingar á því að hljóðið klikkaði eitthvað en það ætti þó að heyrast ágætlega.

,,Markmiðið var að halda hreinu og ná í þrjú stig og það tókst sem betur fer,\" sagði Kristján Óli í samtali við Fótbolta.net.

,,Markareikningurinn er opinn núna, það er alltaf gaman að skora en það mikilvægasta er að liðið vinni.\"

,,Þetta er sennilega ljótasta mark sem ég hef skorað á ferlinum en það telur alveg jafn mikið og sleggja af 40 metrunum.\"


Nánar er rætt við Kristján í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.