Fotbolti.net
20.09.21 - 20:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ítalía: Napoli með fullt hús stiga

Ítalía: Napoli með fullt hús stiga
Canon

Mynd: Getty Images

Udinese 0 - 4 Napoli
0-1 Victor Osimhen ('24 )
0-2 Amir Rrahmani ('35 )
0-3 Kalidou Koulibaly ('52 )
0-4 Hirving Lozano ('84 )
Napoli vann öruggan sigur á Udinese í ítölsku Seria A í kvöld.

Leiknum lauk með 4-0 sigri Napoli en liðið var með tveggja marka forystu í hálfleik. MIðvörðurinn Kalidou Koulibaly bætti þriðja markinu við snemma í síðari hálfleik og Hirving Lozano nelgdi síðasta naglan í kistu Udinese undir lok leiksins.

Napoli er með fullt hús stiga á toppi deildarinnar eftir fjóra leiki. Milanó liðin Inter og AC Milan eru tveimur stigum á eftir í 2.-3. sæti.

Napoli heimsækir Sampdoria í næstu umferð deildarinnar á fimmtudaginn næstkomandi.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio10+1628
2Inter10+1325
3Roma10+1824
4Como10+1023
5Milan10+921
6Frosinone10+1020
7Juventus10+317
8Napoli10+414
9Bologna10+114
10Torino10-213
11Genoa10-413
12Cagliari10-613
13Atalanta10-411
14Lecce10-109
15Parma10-78
16Fiorentina10-88
17Sassuolo10-108
18Monza10-77
19Udinese10-125
20Venezia10-143
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.