Man City gerir tilboð í Olmo - Barcelona reynir líka að fá spænska landsliðsmanninn - Wan-Bissaka vill ekki fara til West Ham
banner
banner
laugardagur 27. júlí
Lengjudeild karla
Besta-deild karla
mánudagur 22. júlí
Besta-deild karla
föstudagur 19. júlí
Lengjudeild kvenna
Besta-deild kvenna
Lengjudeild kvenna
þriðjudagur 16. júlí
Forkeppni Meistaradeildarinnar
Undankeppni EM kvenna
mánudagur 15. júlí
Besta-deild karla
sunnudagur 14. júlí
Úrslitaleikur EM
Besta-deild karla
föstudagur 12. júlí
Undankeppni EM kvenna
þriðjudagur 9. júlí
Forkeppni Meistaradeildarinnar
mánudagur 8. júlí
2. deild karla
Besta-deild karla
Lengjudeild karla
mánudagur 1. júlí
Lengjudeild kvenna
laugardagur 29. júní
Mjólkurbikar kvenna
laugardagur 27. júlí
Engin úrslit úr leikjum í dag
mán 20.sep 2021 09:34 Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Magazine image

Lið ársins og bestu menn í Lengjudeildinni 2021

Fótbolti.net hefur fylgst vel með Lengjudeildinni í sumar. Við fengum þjálfara og fyrirliða deildarinnar til að velja úrvalslið keppnistímabilsins. Hér að neðan má líta það augum en einnig voru þjálfari ársins, besti leikmaður ársins og efnilegasti leikmaður ársins valdir.

Jóhann Árni Gunnarsson, efnilegasti leikmaður Lengjudeildarinnar.
Jóhann Árni Gunnarsson, efnilegasti leikmaður Lengjudeildarinnar.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Sveinsson, þjálfari ársins - gekk allt upp hjá Fram í sumar.
Jón Sveinsson, þjálfari ársins - gekk allt upp hjá Fram í sumar.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eiður Aron Sigurbjörnsson var frábær í liði ÍBV í sumar.
Eiður Aron Sigurbjörnsson var frábær í liði ÍBV í sumar.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kyle McLagan verið stórkostlegur hjá Fram.
Kyle McLagan verið stórkostlegur hjá Fram.
Mynd/Raggi Óla
Það verður spennandi að sjá Albert Hafsteinsson í efstu deild á næsta tímabili.
Það verður spennandi að sjá Albert Hafsteinsson í efstu deild á næsta tímabili.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eftir að ljóst varð að Fram væri komið upp í efstu deild.
Eftir að ljóst varð að Fram væri komið upp í efstu deild.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Íshólm Ólafsson kemur inn af bekknum frá því í fyrra í liði ársins.
Ólafur Íshólm Ólafsson kemur inn af bekknum frá því í fyrra í liði ársins.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Ólafur Íshólm Ólafsson - Fram

Alex Freyr Elísson - Fram
Eiður Aron Sigurbjörnsson - ÍBV
Kyle McLagan - Fram
Haraldur Einar Ásgrímsson - Fram

Guðjón Pétur Lýðsson - ÍBV
Jóhann Árni Gunnarson - Fjölnir
Albert Hafsteinsson - Fram

Fred Saraiva - Fram
Pétur Theódór Árnason - Grótta
Sigurður Bjartur Hallsson - Grindavík


Varamenn:
Lukas Jensen - Kórdrengir
Loic Ondo - Kórdrengir
Felix Örn Friðriksson - ÍBV
Davíð Þór Ásbjörnsson - Kórdrengir
Nicolaj Madsen - Vestri
Gary Martin - Selfoss
Sito - ÍBV

Aðrir sem fengu atkvæði í úrvalsliðið:
Markverðir: Halldór Páll Geirsson (ÍBV), Sigurjón Daði Harðarson (Fjölnir).
Varnarmenn: Aron Elí Sævarsson (Afturelding), Hákon Ingi Einarsson (Kórdrengir), Guðjón Ernir Hrafnkelsson (ÍBV), Ásgeir Frank Ásgeirsson (Kórdrengir), Birgir Ómar Hlynsson (Þór), Gunnlaugur Fannar Guðmundsson (Kórdrengir), Bjarki Þór Viðarsson (Þór), Arnór Breki Ásþórsson (Fjölnir), Kristófer Melsted (Grótta), Gunnar Gunnarsson (Fram), Baldur Sigurðsson (Fjölnir).
Miðjumenn: Nacho Gil (Vestri), Indriði Áki Þorláksson (Fram), Aron Þórður Albertsson (Fram), Harley Willard (Víkingur Ó.), Tiago (Grindavík), Telmo Castanheira (ÍBV), Pedro Vazquez (Afturelding), Fatai Gbadamosi (Kórdrengir).
Sóknarmenn: Kairo Edwards-John (Þróttur R.), Pétur Bjarnason (Vestri).




Þjálfari ársins: Jón Sveinsson - Fram
Nonni tók við Fram fyrir tímabilið 2019 og hefur leið Fram bara verið upp á við síðan. Framarar eru virkilega ánægðir með Nonna og eftir komu hans hefur myndast ákveðin ró í kringum félagið.
Aðrir sem fengu atkvæði sem þjálfari ársins: Helgi Sigurðsson (ÍBV), Davíð Smári Lamude (Kórdrengir).

Leikmaður ársins: Pétur Theódór Árnason - Grótta
Pétur er framherji sem var nálægt því að slá markametið í næstefstu deild. Pétur hefur skorað 23 mörk í 21 leik en metið í næstefstu deild er 25 mörk. Hann mun ekki bæta metið í lokaleiknum þar sem hann er á leið erlendis í frí. Pétur átti frekar erfitt uppdráttar í Pepsi Max-deildinni í fyrra og skoraði einungis þrjú mörk eftir að hafa skorað fimmtán mörk í næstefstu deild þegar Grótta endaði í efsta sæti deildarinnar árið 2019. Pétur var virkilega góður í sumar og hefur ákveðið að söðla um því hann er búinn að skrifa undir hjá Breiðabliki og gengur í raðir félagsins eftir tímabilið.
Aðrir sem fengu atkvæði sem leikmaður ársins: Albert Hafsteinsson (Fram), Eiður Aron Sigurbjörnsson (ÍBV), Kyle McLagan (Fram), Sito (ÍBV), Nicolaj Madsen (Vestri), Guðjón Pétur Lýðsson, Gary Martin (Selfoss).

Efnilegastur: Jóhann Árni Gunnarsson - Fjölnir
Jóhann Árni hefur skorað níu mörk í tuttugu leikjum í sumar. Hann hefur bætt sig heilt yfir sem leikmaður í sumar og sýnt að það er mikill dugnaður í honum og ekki bara gæði þegar hann er með boltann. Það kæmi á óvart ef Jóhann spilar í næstefstu deild að ári.
Aðrir sem fengu atkvæði sem efnilegastur: Sigurjón Daði Harðarson (Fjölnir), Guðjón Ernir Hrafnkelsson (ÍBV), Kjartan Kári Halldórsson (Grótta), Anton Logi Lúðvíksson (Afturelding), Ísak Andri Sigurgeirsson (ÍBV)



Ýmsir molar:
- Framarar, sigurvegararar Lengjudeildarinnar, eiga flesta í liði ársins eða sex talsins. ÍBV á tvo og svo eiga Fjölnir, Grótta og Grindavík einn fulltrúa í liði ársins.

- 41 leikmaður fengu atkvæði í kjörinu, öll tólf liðin voru með leikmann innan sinna raða sem fékk a.m.k. eitt atkvæði. Fram (9), ÍBV (7), Kórdrengir (7), Fjölnir (4), Vestri (3), Grótta (2), Afturelding (2), Þór (2), Grindavík (2), Selfoss (1), Víkingur Ó. (1), Þróttur R. (1).

- Í fyrra voru það 50 leikmenn sem fengu atkvæði.

- Fred er í liðinu annað árið í röð. Ólafur Íshólm og Albert Hafsteinsson voru á bekknum í fyrra.

- Það munaði mjög litlu á Pétri og næsta manni í kjörinu um besta leikmanninn. Albert Hafsteinsson var annar í valinu.

- Jóhann Árni vann með talsverðum yfirburðum í kjörinu um efnilegasta leikmanninn.

- Það var ekki nein spenna í baráttunni um þjálfara ársins. Nonni fékk fullt hús í því vali.

- Þeir Pétur Theódór, Kyle og Eiður Aron fengu öll þau atkvæði sem þeir gátu fengið í lið ársins.

- Gary Martin væri fyrsti maður af bekknum ef upp kæmu meiðsli.
Athugasemdir
banner
banner