Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 20. september 2022 21:27
Brynjar Ingi Erluson
Richarlison þorði ekki að grínast í Conte - „Ertu eitthvað klikkaður?"
Antonio Conte og Thomas Tuchel rifust heiftarlega eftir handabandið fræga
Antonio Conte og Thomas Tuchel rifust heiftarlega eftir handabandið fræga
Mynd: Getty Images
Leikmenn Tottenham Hotspur hafa ekki lagt í það að grínast í Antonio Conte, stjóra liðsins, varðandi umtalaða handabandið milli hans og Thomas Tuchel, en þetta segir Richarlison í viðtali við FourFourTwo.

Conte og Tuchel birtust á forsíðum í öllum helstu blöðum Bretlandseyja eftir handband þeirra eftir 2-2 jafntefli Chelsea og Tottenham í ágúst.

Ítalski stjórinn tók þá í hönd Tuchel sem neitaði að sleppa takinu og úr varð heiftarlegt rifrildi. Tuchel hefur sagt að Conte vildi ekki horfa í augun á honum þegar þeir tókust í hendur.

„Það var skemmtilegt, var það ekki? Á þessum tíma vorum við enn með hugann við leikinn þannig við sáum hvað gerðist á milli þeirra í myndbandi í klefanum. Þetta er nokkuð eðlilegt í fótbolta og þetta getur oft gerst milli leikmanna og líka hjá þjálfurum."

„Eftir það róast allt niður og svo er ekkert meir. En það var gaman að sjá þá tvo mætast. Stjórinn okkar er ekki hræddur við þetta,"
sagði Richarlison.

Brasilíumaðurinn segist ekki hafa þorað að grínast í Conte eftir þetta atvik.

„Ertu eitthvað klikkaður? Ekki séns. Myndir þú reyna að grínast í honum? Ég gerði það ekki," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner