Fotbolti.net
20.09.23 - 21:52
Brynjar Ingi Erluson

Championship: Sjötti sigur Leicester - Markalaust hjá Leeds

Kelechi Iheanacho skoraði sitt fyrsta deildarmark á tímabilinu

Kelechi Iheanacho skoraði sitt fyrsta deildarmark á tímabilinu

Canon

Mynd: Getty Images

Leicester City vann sjötta sigur sinn í ensku B-deildinni á þessu tímabili er liðið lagði Norwich að velli, 2-0, í kvöld.
Kelechi Iheanacho náði í sitt fyrsta mark á tímabilinu er hann skoraði úr vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks áður en Kasey McAteer gulltryggði sigurinn þremur mínútum fyrir leikslok.

Leicester er í öðru sæti með 18 stig eftir fyrstu sjö leikina en aðeins Preston er með fleiri stig, eða 19 talsins.

Sunderland vann þá Blackburn Rovers 3-1. Jack Clarke skoraði tvö fyrir gestina. Sunderland er í 4. sæti með 13 stig.

Hull og Leeds gerðu markalaust jafntefli. Leeds, sem féll úr ensku úrvalsdeildinni í maí, hefur aðeins náð í tíu stig í fyrstu sjö leikjunum.

Úrslit og markaskorarar:

Blackburn 1 - 3 Sunderland
0-1 Jack Clarke ('28 , víti)
1-1 Harry Leonard ('35 )
1-2 Dan Neill ('45 )
1-3 Jack Clarke ('78 )

Huddersfield 2 - 2 Stoke City
1-0 Matthew Pearson ('31 )
1-1 Daniel Johnson ('33 )
1-2 Ben Wilmot ('62 )
2-2 Jack Rudoni ('68 )

Hull City 0 - 0 Leeds
Rautt spjald: Joe Rodon, Leeds ('60)

Millwall 3 - 0 Rotherham
1-0 Ryan Longman ('27 )
2-0 Zian Flemming ('58 )
3-0 Tom Bradshaw ('90 )

Norwich 0 - 2 Leicester City
0-1 Kelechi Iheanacho ('45 , víti)
0-2 Kasey McAteer ('87 )

Watford 2 - 2 West Brom
1-0 Tom Ince ('3 )
1-1 John Swift ('14 )
1-2 Jed Wallace ('17 )
2-2 Matheus Martins ('23 )
Jack Clarke skoraði tvö fyrir Sunderland

Jack Clarke skoraði tvö fyrir Sunderland

Canon

Mynd: Getty Images

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Swansea11+823
2West Ham11+1822
3Middlesbrough11+622
4Birmingham11+920
5West Brom11+320
6Stoke City11+219
7Wolves11+318
8Southampton11+1117
9QPR11+317
10Blackburn11+115
11Sheffield Utd11+115
12Millwall11015
13Portsmouth11015
14Wrexham11-114
15Bolton11-314
16Bristol City11-314
17Charlton Athletic11-514
18Lincoln City11-1012
19Cardiff City11+111
20Watford11-911
21Norwich11-49
22Burnley11-58
23Derby County11-116
24Preston NE11-154
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.