Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 20. nóvember 2020 09:42
Magnús Már Einarsson
David Luiz sló Ceballos í jörðina á æfingu
Mynd: Getty Images
David Luiz og Dani Ceballos lenti saman á æfingu hjá Arsenal í síðustu viku með þeim afleiðingum að Mikel Arteta sendi þá báða heim.

Leikmenn sem voru ekki í landsliðsverkefnum tóku æfingaleik á æfingasvæðinu og þar sauð upp úr.

Luiz kýldi Ceballos í nefið og Spánverjinn lá blóðugur eftir. Ceballos stóð reiður upp og ætlaði að svara fyrir sig en þá komu liðsfélagar og starfsmenn Arsenal og róuðu menn niður.

Luiz og Ceballos voru sendir heim af æfingu en leikmenn Arsenal fengu síðan þriggja daga frí um síðustu helgi.

Á næstu æfingu á þriðjudaginn báðu þeir liðsfélaga sína afsökunar og Arteta lét þá einnig ræða málin og grafa stríðsöxina.
Athugasemdir
banner
banner
banner