Fotbolti.net
20.11.20 - 10:34
Elvar Geir Magnússon

Partey ekki með gegn Leeds

Thomas Partey.

Thomas Partey.

Canon

Mynd: Getty Images

Leeds og Arsenal mætast í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag en Mikel Arteta, stjóri Arsenal, spjallaði við fréttamenn í morgun.

Á fréttamannafundinum staðfesti Arteta að þeir Mohamed Elneny, Sead Kolasinac og Thomas Partey verða allir fjarverandi í leiknum um helgina.
Egypski miðjumaðurinn Elneney og Bosníumaðurinn Kolasinac greindust með Covid-19 þegar þeir voru í landsliðsverkefnum og mega ekki snúa aftur strax.

Thomas Partey meiddist á læri rétt fyrir landsleikjagluggann.

Leikur Leeds og Arsenal verður 16:30 á sunnudag. Arsenal er í ellefta sæti deildarinnar en Leeds í því fimmtánda.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+821
5Bournemouth11+418
6Brentford11+917
7Leeds11+517
8Chelsea11016
9Everton11-216
10Tottenham11+115
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd11-98
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.