Fotbolti.net
20.11.26 - 22:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Helgi Fróði lagði upp - AGF hafði betur í Íslendingaslag

Helgi Fróði lagði upp - AGF hafði betur í Íslendingaslag
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Helgi Fróði Ingason lagði upp eitt af mörkum Helmond í 5-1 sigri á Dordrecht í næst efstu deild í Hollandi í kvöld.

Staðan var 3-0 í hálfleik en Helgi lagði upp annað mark liðsins. Hann fór af velli eftir 67 mínútna leik. Dordrecht klóraði í bakkann stuttu síðar en Helmond kláraði leikinn með tveimur mörkum undir lokin.
Helmond er í 17. sæti deildarinnar með 15 stig eftir 16 umferðir.

Mikael Egill Anderson sneri aftur eftir meiðsli þegar hann kom inn á sem varamaður í 2-1 sigri AGF á Lyngby í efstu deild í Danmörku. Daníel Leó Grétarsson var ónotaður varamaður hjá AGF.

Ísak Snær Þorvaldsson var í byrjunarliði Lyngby, Davíð Helgi Aronsson kom inn á sem varamaður en Daníel Freyr Kristjánsson var ónotaður varamaður. AGF er í 6. sæti með 18 stig eftir 15 umferðir en Lyngby er í 10. sæti með 11 stig.

Ólafur Dan Hjaltason kom inn á sem varamaður í blálokin í 1-1 jafntefli Aarhus Fremad gegn Hobro í næst efstu deild í Danmörku. Ingimar Arnar Kristjánsson var ekki í hópnum.

Daniel Ingi Jóhannesson var í byrjunarliði Kolding og Nóel Atli Arnórsson var í byrjunarliði Aalborg í 1-1 jafntefli liðanna. Aalborg er í 6. sæti með 17 stig eftir 15 umferðir en Kolding er í 8. sæti með 16 stig.

Aron Einar Gunnarsson kom inn á sem varamaður í 2-1 sigri Qatar SC gegn Al Duhail í deildarkeppninni í Katar í dag. Qatara SC er í 11. og næst neðsta sæti með 9 stig eftir 10 umferðir en Al Duhail er í 3. sæti með 21 stig, jafn mörg stig og liðin fyrir ofan.
Helgi Fróði lagði upp - AGF hafði betur í Íslendingaslag
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.