20.11.26 - 17:00
Elvar Geir Magnússon
Kulusevski um meiðslin: Maður er svo einmana

Dejan Kulusevski.

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Dejan Kulusevski.

Mynd: EPA
Það eru liðnir 18 mánuðir síðan Dejan Kulusevski, 26 ára kantmaður Tottenham og sænska landsliðsins, byrjaði síðast keppnisleik. Tottenham hefur unnið Evrópudeildina og skipt þrisvar sinnum um stjóra síðan hann byrjaði síðast leik með aðalliði félagsins.
Alvarleg hnémeiðsli tveimur vikum fyrir lok tímabilsins 2024-25 gerðu það að verkum að hann missti af öllu síðasta tímabili og HM 2026.

TENGT EFNI
Tapaði aldrei voninni - „Gat ekki andað í tvö ár“
Hann ferðaðist til Bilbao á hækjum til að horfa á liðsfélaga sína sigra United í úrslitaleik Evrópudeildarinnar.
„Þetta var einn erfiðasti dagur lífs míns. Það var svo fallegt að sjá allt fólkið hamingjusamt, en ég var að fara þangað með hækjur. Ég gat ekki einu sinni farið og sótt verðlaunapeninginn minn því það var of hált að vera á þessum palli,“ segir Kulusevski í viðtali við BBC þar sem hann lýsir því hversu erfitt andlega það hafi verið að fara í gegnum meiðslin.
„Að sjá liðið fagna á rútunni fyrir utan leikvanginn var líklega einn erfiðasti hluti þessa tímabils því maður er svo einmana. Þér líður eins og allur heimurinn hafi gleymt þér og því sem þú gerðir."
Eldina, eiginkona Kulusevski, segir við breska ríkisútvarpið að það hafi verið erfitt að horfa á eiginmann sinn missa af svona stórum stundum á fótboltaferlinum.
„Að sjá hann missa af úrslitaleik Evrópudeildarinnar og HM, alla leiki ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili, að sjá hann brölta um á hækjunum sínum, þessir hlutar voru mjög erfiðir,“ segir Eldina.
Síðastliðið sumar velti Kulusevski fyrir sér hvort hann myndi spila fótbolta aftur. Þann 19. október fékk Kulusevski hetjulegar móttökur frá stuðningsmönnum Spurs þegar hann lék sinn fyrsta leik í 526 daga.