Fotbolti.net
20.11.26 - 14:12
Elvar Geir Magnússon

Stefan Ljubicic í Breiðablik (Staðfest)

Stefan Ljubicic kominn í grænt.

Stefan Ljubicic kominn í grænt.

Canon

Mynd: Breiðablik

Framherjinn stæðilegi, Stefan Alexander Ljubicic, hefur skrifað undir þriggja ára samning við bikarmeistara Breiðabliks.

„Ég er mjög ánægður með komu Stefans, hann býr yfir mörgum eiginleikum sem munu nýtast liðinu. Hann hefur verið frábær hjá Keflavík en ég held að hann eigi samt sem áður mikið inni og á von á að sjá það brjótast út í Breiðabliks treyjunni," segir Jökull Elísabetarson, þjálfari Breiðabliks, við miðla félagsins.

Stefan, sem er 27 ára, skoraði tólf mörk í 24 leikjum í Bestu deildinni á liðnu sumri. Hann hefur á sínum ferli spilað með Keflavík, Grindavík, HK, KR á Íslandi og erlendis hefur hann verið á mála hjá Brighton og Riga. Hann lék þá á láni í neðri deildum Englands með Bognor Regis Town og Eastbourne Bourough.

Á liðnu tímabili var Breiðablik með Kristófer Inga Kristinsson, Arnar Bjarka Gunnleifsson (2010), Þór Andersen Willumsson (2009) og Þorleif Úlfarsson í fremstu stöðu. Arnar Bjarki var keyptur til Bröndby í Danmörku og Kristófer er með lausan samning.
Tilkynning Breiðabliks:
Stefan Alexander Ljubicic hefur undirritað samning við knattspyrnudeild Breiðabliks og gengur til liðs við bikarmeistarana um áramótin. Stefan er 27 ára gamall og kemur til Breiðabliks frá Keflavík, þar sem hann hefur leikið undanfarin tvö tímabil. Á þeim tíma skoraði Stefan tuttugu mörk, þar af tólf talsins á nýliðnu Íslandsmóti.

Við bjóðum Stefan Alexander Ljubicic hjartanlega velkominn í Breiðablik
Stefan Ljubicic í Breiðablik (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.