Tyrkneska landsliðskonan Fatma Kara hefur yfirgefið herbúðir ÍBV og gengið til liðs við félag í Þýskalandi.
Fatma skoraði tvö mörk í sextán leikjum með ÍBV í Pepsi Max-deildinni síðastliðið sumar.
Hún hafði áður spilað með HK/Víkingi í tvö ár.
Fatma er 29 ára miðjumaður en hún á 45 landsleiki að baki með Tyrklandi.
Athugasemdir