Fotbolti.net
21.01.21 - 22:04
Ívan Guðjón Baldursson

Fyrsta tapið á Anfield síðan í apríl 2017

Fyrsta tapið á Anfield síðan í apríl 2017
Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool tapaði óvænt heimaleik gegn Burnley í kvöld og var þetta fyrsta tap liðsins á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni síðan í apríl 2017.
Liverpool hafði farið taplaust í gegnum 68 heimaleiki í deildinni þar til Ashley Barnes og hinir lærisveinar Sean Dyche mættu á Anfield.

Staðan er ekki sérlega góð hjá Liverpool þessa stundina en liðið er aðeins búið að ná í þrjú stig úr síðustu fimm úrvalsdeildarleikjum sínum.

Liverpool hefur ekki tekist að skora mark í síðustu fjórum deildarleikjum sínum en þar áður gerði liðið 1-1 jafntefli við West Brom og vann 0-7 sigur á útivelli gegn Crystal Palace.

Þá skoraði Liverpool fjögur mörk gegn unglingaliði Aston Villa í FA-bikarnum á milli úrvalsdeildarleikja.

Liverpool er í fjórða sæti úrvalsdeildarinnar, sex stigum eftir toppliði Manchester United.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.