Fotbolti.net
21.01.23 - 23:09
Brynjar Ingi Erluson

Pope oftar haldið hreinu en fengið á sig mark

Nick Pope

Nick Pope

Canon

Mynd: Getty Images

Nick Pope, markvörður Newcastle United, hefur oftar haldið hreinu en fengið á sig mark í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð.
Pope kom til Newcastle frá Burnley síðasta sumar og hefur gjörsamlega múrað fyrir markið.

Hann hefur aðeins fengið á sig ellefu mörk í tuttugu leikjum í deildinni en liðið hefur fengið á fæst mörk af öllum liðum í deildinni.

Englendingurinn hélt aftur hreinu í markalausa jafnteflinu gegn Crystal Palace í kvöld en það var í tólfta sinn á tímabilinu sem liðið fær ekki á sig mark.

Newcastle hefur ekki tapað í síðustu fimmtán leikjum sínum og er á góðri leið með að koma sér í Meistaradeild Evrópu fyrir næstu leiktíð.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.