21.03.21 - 05:55
Victor Pálsson
Ítalía í dag - Stórlið eiga leiki

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Það fer fram stórleikur á Ítalíu í kvöld er lið Roma og Napoli mætast í Serie A klukkan 19:45.
Bæði lið eru í Evrópubaráttu fyrir viðureignina og eru með 50 stig í fimmta og sjötta sæti deildarinnar.
Roma hefur verið í smá brasi undanfarið og hefur tapað tveimur af síðustu fjórum leikjum sínum gegn Parma og AC Milan.
Milan er einnig í eldlínunni klukkan 17:00 gegn Fiorentina. Milan þarf á sigri að halda ef liðið ætlar að halda í einhverja von um að vinna titilinn.
Fyrir leikinn er Inter Milan með níu stiga forskot á toppnum en Juventus getur einnig minnkað það í sjö stig með sigri á Benevento klukkan 14:00.
Serie A:
11:30 Verona - Atalanta
14:00 Juventus - Benevento
14:00 Udinese - Lazio
14:00 Sampdoria - Torino
17:00 Fiorentina - Milan
19:45 Roma - Napoli