Fotbolti.net
21.04.21 - 16:04
Elvar Geir Magnússon

Byrjunarlið Tottenham og Southampton: Kane meiddur en Bale byrjar

Ryan Mason stýrir Tottenham út tímabilið.

Ryan Mason stýrir Tottenham út tímabilið.

Canon

Mynd: Getty Images

Mourinho-laust Tottenham mætir til leiks í ensku úrvalsdeildinni er liðið fær Southampton í heimsókn núna klukkan 17:00. Jose Mourinho var rekinn frá Tottenham fyrr í vikunni og mun Ryan Mason stýra því út tímabilið. Mason, sem er fæddur 1991, er fyrrum leikmaður Spurs.

Tottenham situr í sjöunda sæti, hefur ekki unnið deildarleik síðan þann 21. mars er liðið vann Aston Villa 0-3 á Villa Park.
Mason gerir þrjár breytingar á liðinu sem byrjaði síðasta leik Mourinho fyrir fimm dögum. Stærstu fréttirnar eru þær að Harry Kane er meiddur og því ekki með. Hann skoraði bæði mörk Spurs í 2-2 jafnteflinu gegn Everton.

Uppfært: Ryan Mason segir að meiðsli Kane séu ekki alvarleg og vonast til að hann snúi aftur til æfinga í lok vikunnar.

Gareth Bale, Giovani Lo Celso og Lucas Moura koma allir inn í byrjunarlið Tottenham.

Ralph Hasenhuttl, stjóri Southampton, gerir fimm breytingar á liðinu sem byrjaði tapleikinn gegn Leicester í undanúrslitum FA-bikarsins. Ryan Bertrand er ekki með og þeir Fraser Forster, Nathan Redmond, Moussa Djenepo og Ibrahima Diallo eru settir á bekkinn.

Alex McCarthy byrjar í markinu og þá koma Mohammed Salisu, Nathan Tella, Theo Walcott og Che Adams einnig inn.

Byrjunarlið Tottenham: Lloris, Aurier, Alderweireld, Dier, Reguilon, Hojbjerg, Lo Celso Ndombele, Bale, Son, Moura

(Varamenn: Hart, Sanchez, Winks, Lamela, Sissoko, Alli, Bergwijn, Tanganga, Vinicius)

Byrjunarlið Southampton McCarthy, Walker-Peters, Vestergaard, Bednarek, Salisu, Tella, Ward-Prowse, Armstrong, Walcott, Ings, Adams

(Varamenn: Forster, Stephens, Redmond, Djenepo, Minamino, Diallo, N'Lundulu, Ferry, Jankewitz)
Gareth Bale er í byrjunarliðinu.

Gareth Bale er í byrjunarliðinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City9+1021
2Arsenal8+821
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool8+315
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.