Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
Davíð Smári: Það lítur ekki vel út fyrir Jóhann
Gunnar Heiðar: Helvíti langur tími fyrir fótboltaþjálfara
Jóhann Birnir svekktur: Mér fannst þetta ekki vera aukaspyrna
Fannst ekki ganga nógu vel að koma mönnum niður á jörðina eftir leikinn gegn FH
Brynjar Björn: Stór og sterkur og það er eitthvað sem vantaði
Venni: Æðislegt að hann taki þátt í þessu með okkur
Hallgrímur Mar: Loksins kominn í eitthvað stand
Hallgrímur Jónasar: Það býr meira í KA liðinu
Jói Kalli: Stuðningsmenn FH hafa allan rétt á sinni skoðun
Aron Sig: Væri högg fyrir hvert einasta lið
Talar um verðskuldaðan sigur: Hægt að vinna fótboltaleiki á fleiri vegu
Rúnar: Dálítið leiðinlegt að vera svona smámunasamur
Hemmi alsæll eftir dísætan sigur - „Ótrúlega fallegt að sjá þetta inni“
Óskar Hrafn: Partíin voru annars staðar
Ólafur Ingi neitar að tjá sig um mögulegt víti Blika
Haraldur Freyr: Flestir komast upp með mikið á móti honum
Fluttur til Keflavíkur og heldur sér uppteknum með fótboltanum
Jökull: Það eina sem ég hef áhyggjur af
Linta: Hötum að tapa en sýndum samt karakter
Viktor Jóns: Erfitt að verja svona
   þri 21. apríl 2026 14:48
Kári Snorrason
Efstur á óskalista leikmanna - „Þakklátur og smá meyr“
Kvenaboltinn
Óskar Smári Haraldsson.
Óskar Smári Haraldsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjörnunni var spáð 5. sæti deildarinnar af leikmönnum, þjálfurum og forráðarmönnum.
Stjörnunni var spáð 5. sæti deildarinnar af leikmönnum, þjálfurum og forráðarmönnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan mætir Víkingi í opnunarleik Bestu deildar kvenna á föstudaginn. Stjarnan fer inn í nýtt tímabil með nýjan mann í brúnni en Óskar Smári Haraldsson tók við liðinu af Jóhannesi Karli Sigursteinssyni.

Snæbjört Pálsdóttir, fréttamaður Fótbolta.net, ræddi við Óskar um komandi tímabil á kynningarfundi Bestu deildarinnar í hádeginu í dag.

Spáð 5. sæti
Hvernig hljómar það?
„Spáin er bara skemmtileg. Það er alltaf gaman þegar leikmenn, þjálfarar og forráðamenn rýna í spilin. Fimmta sætið er bara flott, ég hef alltaf sagt að spár eru eitthvað til að afsanna. Ég held að það sé ekkert launungamál að við stefnum hærra en 5. sætið. Á sama tíma verðum við að gera okkur grein fyrir því að þetta verður jöfn og erfið deild.“

Sá eftirsóttasti
Í leikmannakönnun voru leikmenn spurðir undir hvaða þjálfara þeir vildu helst spila og þar bar Óskar sigur úr býtum.

„Það er viðurkenning. Gífurlega stoltur af því og glaður að sjá það. Ætli ég hafi ekki reynt að fá annan hvern leikmann í deildinni til að spila fyrir mig í Fram. Tekið marga fundi með leikmönnum sem hafa ekki spilað fyrir mig.

Ég er þakklátur og smá meyr. Þú ert með Gylfa Tryggva, bræðurna Guðna og Hlyn og marga fleiri góða kandídata fyrir þessa viðurkenningu. Þetta gladdi mig og gaf mér hlýtt í hjartað,“
sagði Óskar að lokum.

Slapp
banner