Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
   fös 21. maí 2021 05:55
Brynjar Ingi Erluson
England um helgina - Liverpool í Meistaradeildina?
Liverpool getur komið sér í Meistaradeildina á sunnudaginn
Liverpool getur komið sér í Meistaradeildina á sunnudaginn
Mynd: EPA
Jorginho og Thomas Tuchel.
Jorginho og Thomas Tuchel.
Mynd: EPA
Lokaumferðin í ensku úrvalsdeildinni fer fram á sunnudag en allir leikirnir hefjast á sama tíma, klukkan 15:00. Liverpool á möguleika á því að tryggja Meistaradeildarsæti gegn Crystal Palace.


Liverpool er í dauðafæri á að komast í Meistaradeildina er liðið fær Crystal Palace í heimsókn á Anfield. Stuðningsmenn verða á vellinum og gæti það gefið heimamönnum aukið sjálfstraust fyrir leikinn.

Tvö önnur lið geta tryggt sig í Meistaradeildina. Leicester spilar við Tottenham á King Power-leikvanginum. Leicester nægir sigur ef Liverpool tapar stigum gegn Palace en ef það gengur ekki þá þarf Leicester að vinna stórsigur á Spurs.

Chelsea er enn í hættu á að missa af Meistaradeildarsæti en liðið spilar við Aston Villa. Þetta er í höndum Chelsea, sigur og liðið er komið áfram en ef liðið tapar stigum þá þarf liðið að treysta á önnur úrslit.

West Ham getur þá komist í Evrópudeildina en liðið þarf aðeins eitt stig til þess. West Ham mætir Southampton á London-leikvanginum.

Leikir helgarinnar:

Sunnudagur:
15:00 Arsenal - Brighton
15:00 Aston Villa - Chelsea
15:00 Wolves - Man Utd
15:00 West Ham - Southampton
15:00 Sheffield Utd - Burnley
15:00 Man City - Everton
15:00 Leeds - West Brom
15:00 Fulham - Newcastle
15:00 Liverpool - Crystal Palace
15:00 Leicester - Tottenham
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner
banner
banner