21.06.26
Tvö heitustu lið deildarinnar - „Stór fjölskylda sem er mjög glöð"
ÍVAR BJÖRGVINSSON
Fram tekur á móti Víkingi í stórleik 11. umferðar Bestu deildar karla annað kvöld á Lambhagavellinum. Bæði lið hafa átt frábært tímabil til þessa en Víkingar eru enn taplausir og í efsta sæti deildarinnar á meðan Framarar eru í því þriðja með 23 stig, einungis tveimur stigum á eftir KR.
Tvö heitustu lið deildarinnar eru að mætast en Víkingar hafa unnið síðustu tíu leiki í röð í deildinni og eru komnir í undanúrslit Mjólkurbikarsins en ekkert virðist geta stöðvað þá.
Framarar koma einnig inn í leikinn á fljúgandi siglingu en þeir hafa unnið sex leiki og gert eitt jafntefli í síðustu sjö leikjum Bestu deildarinnar. Jafnteflið kom einmitt gegn KR sem höfðu þá unnið alla leiki sína á tímabilinu. Í þessum sjö leikjum hafa Framarar skorað 23 mörk og fengið á sig 14.
Til þess að hita upp fyrir þennan risaleik heyrði Fótbolti.net í Daða Berg Jónssyni, leikmanni Víkings sem hefur verið að glíma við erfið meiðsli, og Valtý Birni Valtýssyni, íþróttafréttamanni og miklum Framara.