Fotbolti.net
21.08.19 - 20:31
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Þórður Gunnar: Bjarni sagði mér að hlaupa innfyrir línuna

Auglýsing
Þórður Gunnar: Bjarni sagði mér að hlaupa innfyrir línuna
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Frábær leikur hjá okkur og mér fannst við hafa tökin á leiknum allan tímann og svo komu þessi mörk," sagði Þórður Gunnar Hafþórsson, leikmaður Vestra, eftir 0-3 útisigur Vestra gegn ÍR í 2. deild karla í kvöld. Þórður Gunnar gerði fyrsta og síðasta mark Vestra í leiknum.

Lestu um leikinn: ÍR 0 - 3 Vestri
„Ég er mjög ánægður með mörkin. Ég legg upp með að mæta inn í svæðin þar sem boltinn kemur og vera klár að fá hann."

Þórður var að lokum spurður út í lykilinn að undirbúning fyrir leikinn, hvað Bjarni sagði við hann fyrir leik og hvernig framhaldið liti út.

„Sofa vel og borða vel. Bjarni segir mér að hlaupa innfyrir línuna og vera duglegur og "aggresívur". Bjarni er frábær þjálfari. Við ætlum að vinna þessa deild, þýðir ekkert annað."

Fyrsta mark Þórðar kom einmitt eftir hlaup innfyrir línuna og því hafa orð Bjarna skilað sér til Þórðar í kvöld.

Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.