Vejgaard 0 - 3 Århus Fremad
0-1 J. Torp ('13)
0-2 Christensen Laursen ('64)
0-3 C. Nissen ('68)
0-1 J. Torp ('13)
0-2 Christensen Laursen ('64)
0-3 C. Nissen ('68)
Elías Rafn Ólafsson og félagar í Århus Fremad virðast vera óstöðvandi um þessar mundir. Þeir tróna á toppi síns riðils í dönsku C-deildinni og voru að vinna sinn sjötta leik í röð.
Í dag lögðu þeir Vejgaard á útivelli með þremur mörkum gegn engu og stefnir liðið upp í B-deildina.
Århus er með fjögurra stiga forystu á toppinum sem stendur, en næstu lið fyrir neðan eiga leik til góða.
Elías Rafn er á mála hjá FC Midtyjlland, sem trónir á toppi efstu deildar í Danmörku. Hann er á lánssamningi hjá Árósum.
Her går det godt 💛🖤
— Aarhus Fremad (@Aarhus_Fremad) September 21, 2019
3️⃣-0️⃣ sejr
6️⃣ på stribe
⚽️ Jacob Torp
⚽️ Marvin Laursen
⚽️ Christian Nissen pic.twitter.com/wyi3AaCDty
Athugasemdir