Fotbolti.net
21.09.19 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Ítalía í dag - AC Milan mætir Inter í beinni

Piatek mætir Lukaku

Ítalía í dag - AC Milan mætir Inter í beinni
Canon

Mynd: Getty Images

Udinese tekur á móti nýliðum Brescia í fyrsta leik dagsins í ítalska boltanum.
Brescia hefur sýnt góða takta á upphafi tímabils en er þó aðeins með þrjú stig eftir þrjár umferðir. Mario Balotelli er á mála hjá félaginu en hann er í leikbanni og verður ekki liðtækur fyrr en í næstu umferð eftir þessar.

Ítalíumeistarar Juventus eiga þá heimaleik við nýliða Verona. Þeir hikstuðu í síðustu umferð og voru heppnir að sleppa frá Flórens með stig. Juve er með sjö stig eftir þrjár umferðir undir stjórn Maurizio Sarri.

Lokaleikur dagsins er jafnframt sá stærsti. AC Milan mætir þar Inter í einum heitasta erkifjenda- og nágrannaslag sem sögur fara af.

Il Derby della Madonnina fer fram í kvöld og verður leikurinn sýndur á Stöð 2 Sport.

Inter er með fullt hús stiga á meðan Milan er með sex stig eftir tap gegn Udinese í fyrstu umferð. Gríðarleg eftirvænting er fyrir þennan leik á Ítalíu.

Leikir dagsins:
13:00 Udinese - Brescia
16:00 Juventus - Verona (Stöð 2 Sport 3)
18.45 AC Milan - Inter (Stöð 2 Sport)
Ítalía í dag - AC Milan mætir Inter í beinni
Canon

Mynd: Getty Images

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio10+1628
2Inter10+1325
3Roma10+1824
4Como10+1023
5Milan10+921
6Frosinone10+1020
7Juventus10+317
8Napoli10+414
9Bologna10+114
10Torino10-213
11Genoa10-413
12Cagliari10-613
13Atalanta9-111
14Sassuolo10-711
15Lecce10-109
16Monza10-77
17Parma9-105
18Fiorentina10-115
19Udinese10-125
20Venezia10-143
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.