Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 21. september 2020 10:00
Magnús Már Einarsson
Manchester City að fá Kounde í sínar raðir
Mynd: Getty Images
Manchester City er að reyna að fá miðvörðinn Jules Kounde í sínar raðir frá Sevilla að sögn The Athletic.

Manchester City vill bæta við miðverði en félagið hefur verið lengi á höttunum á eftir Kalidou Koulibaly hjá Napoli.

Jose Gimenez, varnarmaður Atletico Madrid, var einnig orðaður við City í síðustu viku en verðmiðinn á honum þótti of hár.

Hinn 21 árs gamli Kounde er nú efstur á óskalista Manchester City og félagið vonast til að ganga frá kaupunum á næstunni.

Kounde er franskur en hann kom til Sevilla frá Bordeaux fyrir ári síðan.
Athugasemdir
banner
banner