Fotbolti.net
21.10.26 - 23:06
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Úlfur hættir með Kára eftir besta tímabil í sögu félagsins

Úlfur hættir með Kára eftir besta tímabil í sögu félagsins
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úlfur Arnar Jökulsson mun ekki halda áfram sem þjálfari Kára og 2. flokks ÍA á næsta tímabili.
Úlfur tók við Kára, sem er venslalið ÍA, fyrir tímabilið 2026 og náði frábærum árangri með liðinu. Kára var spáð 11. sæti í 2. deild en hafnaði í 3. sæti, sem er besti árangur í sögu félagsins.

Kári var með yngsta lið deildarinnar og tapaði aðeins tveimur af 22 leikjum. Liðið var einugis þremur stigum frá sæti í Lengjudeildinni. Úlfur var í kjölfarið valinn þjálfari ársins í 2. deild af Harkinu hér á Fótbolta.net.

Úlfur, sem er með UEFA Pro þjálfararéttindi, hefur áður meðal annars þjálfað meistaraflokk Fjölnis í Lengjudeildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.