Þróttur Vogum hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi átök en liðið fékk til sín tvo leikmenn frá FH í dag.
Um er að ræða tvo efnilega leikmenn en FH hefur staðfest að þeir Arnar Sigþórsson og Haukur Leifur Eiríksson hafi skrifað undir í Vogum.
Báðir leikmennirnir voru lykilmenn í 2. flokk hjá FH á síðustu leiktíð er liðið fagnaði Íslandsmeistaratitlinum.
Arnar var bæði fyrirliði liðsins og endaði markahæstur á mótinu. Haukur er varnarmaður og leikur yfirleitt í miðverði.
Þróttarar enduðu í þriðja sæti 2. deildarinnar á síðustu leiktíð og voru afar nálægt því að komast upp um deild.
Liðið byrjaði undirbúningstímabilið vel með 2-1 sigri á Haukum í Fótbolta.net mótinu.
Athugasemdir