Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 22. febrúar 2017 11:49
Magnús Már Einarsson
Sara Björk tilnefnd í lið ársins í heiminum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sara Björk Gunnarsdóttir, leikmaður Wolfsburg og íslenska landsliðsins, hefur verið tilnefnd í lið ársins í heiminum hjá FIFPro.

55 leikmenn eru tilnefndir en liðið verður tilkynnt á alþjóðlegum degi kvenna þann 8. mars næstkomandi. Sara er ein af 15 miðjumönnum sem koma til greina í liðið.

3000 knattspyrnukonur í 47 löndum tóku þátt í valinu á liði ársins að þessu sinni.

Af þeim 55 leikmönnum sem eru tilnefndir koma níu frá Bandaríkjunum, átta frá Frakklandi og sex frá Þýskalandi.

Smelltu hér til að sjá alla leikmenn sem eru tilnefndir



Athugasemdir
banner
banner