Fotbolti.net
22.03.21 - 14:00
Magnús Már Einarsson

Biðja Bruce um að labba í burtu

Steve Bruce.

Steve Bruce.

Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle Chronicle, staðarblaðið í Newcastle, hefur kallað eftir því að Steve Bruce hætti störfum sem stjóri liðsins.

Newcastle steinlá 3-0 gegn Brighton um helgina og er tveimur stigum frá falli. Fulham, sem er í 18. sætinu, á leik til góða á Newcastle.
„Gerðu það heiðarlega og labbaðu í burtu," segir á síðum Newcastle Chronicle í dag þar sem stór mynd er af Bruce.

Newcastle hefur einungis unnið tvo af síðustu tuttugu leikjum og mikil pressa er á Bruce þessa dagana.

Samkvæmt fréttum frá Englandi er Mike Ashley, eigandi Newcastle, hins vegar ekki á því að skipta um stjóra.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.