Fotbolti.net
22.05.22 - 11:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Aðeins United undir stjórn Sir Alex gat unnið fjóra titla á fimm árum"

„Aðeins United undir stjórn Sir Alex gat unnið fjóra titla á fimm árum"
Canon

Mynd: EPA

Lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar fer fram í dag en allir leikirnir hefjast kl 15.

Manchester City er með pálmann í höndunum en liðið er á toppnum með eins stigs forystu á Liverpool. City fær Aston Villa í heimsókn á meðan Liverpool mætir Wolves.

Fari svo að City vinni verður þetta fjórði titill City á síðustu fimm árum. Guardiola sagði að þessi árangur setji þetta City lið á sama stað og Manchester United undir stjórn Sir Alex Ferguson.

„Þegar ég kom sagði fólk að úrvalsdeildin væri mjög erfið, sú erfiðasta, allir vinna alla. Aðeins United undir stjórn Sir Alex gat unnið fjóra titla á fimm árum," sagði Guardiola.

„Þegar svona gerist áttaru þig á stærðargráðu United liðsins á þessum tíma og hvernig þeim tókst að gera þetta svona oft. Við erum nálægt því að vera hluti af því og við verðum að grípa tækifærið."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.