Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 22. október 2020 09:40
Magnús Már Einarsson
Heimslistinn: Ísland upp um tvö sæti
Icelandair
Ísland fagnar marki gegn Rúmeníu á dögunum.
Ísland fagnar marki gegn Rúmeníu á dögunum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Belgar eru á toppi heimslistans.
Belgar eru á toppi heimslistans.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska karlalalandsliðið hoppar upp um tvö sæti á nýjum heimslista FIFA og situr í 39-40. sæti ásamt Marokkó. Ísland vann Rúmena í umspili um sæti á EM á dögunum en tapaði gegn Danmörku og Belgíu í Þjóðadeildinni.

Belgar eru sem fyrr í efsta sæti og engin breyting er á efstu fimm sætunum.

Ungverjar, mótherjar íslenska liðsins í úrslitaleik umspils um sæti í lokakeppni EM, eru stigahæsta liðið milli mánaða, en Rúmenar, sem Íslendingar slógu út í undanúrslitum, lækka mest bæði í stigum og sætum. Ungverjar eru í 47. sæti listans en Rúmenar eru í 44. sæti.

Heimslistinn
1. Belgía
2. Frakkland
3. Brasilía
4. England
5. Portúgal
6. Spánn
7. Úrúgvæ
8. Argentína
9. Króatía
10. Kolumbía
11. Mexíkó
12. Ítalía
13. Danmörk
14. Þýskaland
15. Holland
16. Sviss
17. Síle
18. Pólland
19. Svíþjóð
20. Wales
21. Senegal
22. Bandaríkin
23. Úkraína
24. Perú
25. Austurríki
26. Túnis
27. Japan
28. Venesúela
29. Íran
30-31. Serbía
30-31. Alsír
32. Nígería
33. Tyrkland
34. Rússland
35. Paragvæ
36. Írland
37. Slóvakía
38. Suður-Kórea
39-40. Ísland
39-40. Marokkó
41. Norður-Írland
42. Ástralía
43. Noregur
44. Rúmenía
45. Skotland
46. Tékkland
47. Ungverjaland
48-49. Jamaíka
48-49. Gana
50. Kosta Ríka
Athugasemdir
banner
banner
banner