Fotbolti.net
22.11.24 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Subway

England um helgina - Fyrsti leikur Amorim og endurfundir í Leicester

Ruben Amorim verður á hliðarlínunni hjá United í fyrsta sinn

Ruben Amorim verður á hliðarlínunni hjá United í fyrsta sinn

Canon

Mynd: EPA

Tólfta umferð ensku úrvalsdeildarinnar fer fram um helgina og eru margir spennandi leikir á dagskrá.
Enzo Maresca fer með Chelsea á gamla heimavöll Ítalans í hádeginu á morgun.

Liðið mætir þá Leicester, sem Maresca stýrði einmitt upp í úrvalsdeildina á síðustu leiktíð.

Fimm leikir fara fram klukkan 15:00. Arsenal mætir spútnikliði Nottingham Forest á Emirates-leikvanginum á meðan Aston Villa spilar við Crystal Palace. Hákon Rafn Valdimarsson og félagar í Brentford heimsækja Everton á Goodison Park.

Englandsmeistarar Manchester City, sem hafa tapað fjórum leikjum í röð, mæta Tottenham Hotspur á Etihad.

Á sunnudag eru tveir leikir. Topplið Liverpool heimsækir nýliða Southampton á St. Mary's á meðan Ruben Amorim stýrir Manchester United í fyrsta sinn er liðið heimsækir nýliða Ipswich Town á Portman Road.

Leikir helgarinnar:

Laugardagur:
12:30 Leicester - Chelsea
15:00 Bournemouth - Brighton
15:00 Arsenal - Nott. Forest
15:00 Aston Villa - Crystal Palace
15:00 Everton - Brentford
15:00 Fulham - Wolves
17:30 Man City - Tottenham

Sunnudagur:
14:00 Southampton - Liverpool
16:30 Ipswich Town - Man Utd
Lærisveinar Pep Guardiola hafa tapað fjórum leikjum í röð í öllum keppnum

Lærisveinar Pep Guardiola hafa tapað fjórum leikjum í röð í öllum keppnum

Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.