Fotbolti.net
23.01.20 - 22:44
Ívan Guðjón Baldursson

Klopp: Þurftum töfrastund frá Firmino

Klopp: Þurftum töfrastund frá Firmino
Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool lagði Wolves að velli í ensku úrvalsdeildinni fyrr í kvöld og jók forystu sína á toppi deildarinnar í sextán stig, með leik til góða.
Árangur liðsins hefur verið ótrúlegur hingað til en liðið er búið að vinna 22 og gera 1 jafntefli á deildartímabilinu. Liðinu gekk jafn vel á seinni hluta síðasta tímabils og var leikurinn í kvöld sá fertugasti í röð sem liðið tapar ekki.

Jürgen Klopp var ánægður með úrslitin þó hann hafi ekki verið sérlega hrifinn af spilamennsku sinna manna.

„Þetta var erfiður leikur gegn góðu liði, Nuno (Espirito Santo) er að gera mjög vel. Það var fáránlegt að fá mark á okkur úr skyndisókn þegar við vorum 1-0 yfir. Eftir að þeir jöfnuðu var leikurinn brjálaður í 10 mínútur en svo náðum við stjórn á honum," sagði Klopp.

„Á endanum þurftum við töfrastund frá Bobby Firmino til að hjálpa okkur. Það mikilvægasta var að halda rónni en það er ljóst að við getum bætt margt við okkar leik.

„Við vorum ekki alveg nógu vel stemmdir. Strákarnir eru mennskir og við áttum góða og slæma kafla í leiknum. Það eru svona stundir sem geta verið mikilvægar í leikjum, í dag skoruðum við úr föstu leikatriði og svo vegna einstaklingshæfileika."


Sadio Mane þurfti að fara meiddur af velli í fyrri hálfleik. Klopp telur þetta vera vöðvameiðsli en það er ekki hægt að segja neitt með vissu fyrr en á morgun.

„Það er synd að missa Sadio. Vonandi er þetta ekki of slæmt, bara smá vöðvameiðsli. Við munum sjá til á morgun."

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Brighton1+43
2Arsenal1+33
3Brentford1+33
4Everton1+23
5Hull City1+23
6Man City1+13
7Ipswich Town1+13
8Leeds1+13
9Chelsea1+13
10Liverpool101
11Newcastle101
12Fulham1-10
13Sunderland1-10
14Bournemouth1-10
15Nott. Forest1-10
16Man Utd1-20
17Crystal Palace1-20
18West Ham38-1939
18Tottenham1-30
19Coventry1-30
19Burnley38-3722
20Wolves38-4120
20Aston Villa1-40
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.