Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 23. janúar 2020 23:54
Ívan Guðjón Baldursson
Reykjavíkurmót kvenna: Katrín Ómars rassskellti Fjölni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR 3 - 0 Fjölnir
1-0 Katrín Ómarsdóttir ('41)
2-0 Katrín Ómarsdóttir ('48)
3-0 Katrín Ómarsdóttir ('55)

KR og Fjölnir áttust við í Egilshöllinni í Reykjavíkurmóti kvenna fyrr í kvöld. KR var með sex stig eftir tvær fyrstu umferðirnar á meðan Fjölnisstúlkur voru stigalausar.

Staðan var markalaus fram að 41. mínútu þegar Katrín Ómarsdóttir lét til sín taka og kom KR yfir.

Katrín tvöfaldaði forystuna í upphafi síðari hálfleiks og fullkomnaði þrennuna skömmu síðar. Það tók hana stundarfjórðung að skora þrjú mörk.

Meira var ekki skorað og lokatölur 3-0, Katrín Ómars afgreiddi Fjölni upp á eigin spýtur.
Athugasemdir
banner
banner
banner