Fotbolti.net
23.02.20 - 05:55
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Subway

England í dag - Arsenal tekur á móti Everton

Arsenal fær Everton í heimsókn.

Arsenal fær Everton í heimsókn.

Canon

Mynd: Getty Images

Það er flottur sunnudagur framundan í ensku úrvalsdeildinni, fjögur af liðunum sem spila í dag eru í Meistaradeildarbaráttu og tvö þeirra eru í fallbaráttu.
Klukkan 14:00 verður flautað til leiks í tveimur leikjum, Manchester United tekur á móti Watford á Old Trafford, Rauðu djöflarnir vilja fylgja eftir góðum 0-2 sigri á Chelsea á mánudaginn, Watford er í fallbaráttu og þarf nauðsynlega á stigum að halda.

Hinn leikurinn sem hefst klukkan 14:00 fer fram Molineux þar sem heimamenn í Wolves taka á móti Norwich, Úlfarnir að berjast um Meistaradeildarsæti en Norwich á botni deildarinnar í mjög slæmum málum.

Lokaleikur dagsins í ensku úrvalsdeildinni er viðureign Arsenal og Everton á Emirates leikvagnum í Lundúnum, þýðingarmikill leikur fyrir bæði lið sem eru í Evrópubaráttu, aðeins munar tveimur stigum á liðunum. Flautað verður til leiks klukkan 16:30.

Sunnudagur 23. febrúar.
14:00 Manchester United - Watford (Síminn Sport)
14:00 Wolves - Norwich
16:30 Arsenal - Everton (Síminn Sport)






Man Utd tekur á móti Watford.

Man Utd tekur á móti Watford.

Canon

Mynd: Getty Images

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City2+46
2Arsenal2+46
3Hull City2+36
4Chelsea2+26
5Liverpool3+25
6Brentford2+34
7Newcastle2+24
8Everton2+24
9Leeds2+14
10Brighton2+33
11Man Utd2+13
12Sunderland203
13Ipswich Town3-43
14Bournemouth2-11
15Nott. Forest2-11
16Fulham2-20
17Coventry2-40
18Crystal Palace2-50
19Aston Villa2-50
20Tottenham2-50
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.